Um okkur
HTL ehf var stofnað á haustmánuðum 2023 af Davíð Þ. Olgeirssyni. Á þeim tíma hafði Davíð starfað hjá Hjálpartækjaleigu Sjálfsbjargar í átta ár.
Hjálpartækjaleigan er enn á sama stað: í Hátúni 12, Sjálfsbjargarhúsinu. Það skipti okkur máli. Fólk sem hefur sótt hjálpartæki þangað árum saman þarf ekki að leita að nýjum stað.
Síðan hefur verslunin vaxið út fyrir hjálpartækin. Í dag erum við meðal annars með Loop eyrnatappa, sundvörur fyrir börn og fullorðna, gripsokka, bæjarveggmyndir og gjafavörur. Það sem bindur þetta saman er einfalt: við veljum gæða vörur sem við þekkjum og getum svarað fyrir.
Hringdu í 518 6000, sendu póst á [email protected] eða komdu við í Hátúni 12. Sjáðu opnunartíma og algengar spurningar.